Vegna ófyrirséðra aðstæðna hefur nefndin ákveðið að framlengja skráningarfrest á HealthCo fjórganginn í Blue Lagoon mótaröðinni.
Skráningu lýkur kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 23. febrúar. Við biðjum knapa um að vera tímanlega í því að skrá sig því einhver vandræði hafa skapast við skráningar, því fyrr sem er skráð – því auðveldara að fá aðstoð ef eitthvað fer úrskeiðis!
Einnig viljum við benda á að æfingatímar fyrir fjórganginn verða í Samskipahöllinni á laugardaginn 24. febrúar frá kl. 16:00 – 19:00.
Eftirfarandi flokkar eru í boði:
Pollaflokkur fyrir polla sem ríða sjálfir (6-9 ára)
Barnaflokkur (10-13 ára)
Unglingaflokkur (14-17 ára)
Ungmennaflokkur (18-21 árs)
Riðið verður hefðbundið fjórgangsprógram (V2) eftir þul í barna-, unglinga- og ungmennaflokki.
Pollaflokkur sýnir þrígangsprógram: tölt, brokk og fet.
Skráning fer fram í gegnum Sportfeng og eru skráningagjöld eftirfarandi:
2500 kr. fyrir barna-, unglinga- og ungmennaflokk
1000 kr. fyrir pollaflokk
Skráning er opin til kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 23. febrúar! Mikilvægt er að senda kvittun fyrir greiðslu á netfangið
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. !!
6 efstu knapar eftir forkeppni fara í úrslit en það verða ekki riðin b-úrslit. Vegleg verðlaun í öllum flokkum, allir pollar fá viðurkenningu auk þess sem glæsilegasta parið er valið í pollaflokki. Knapar í barna-, unglinga- og ungmennaflokki safna stigum í gegnum mótaröðina og verða veitt verðlaun fyrir stigahæstu knapana í hverjum flokki á síðasta mótinu.
Vonumst til að sjá sem flesta í Samskipahöllinni á sunnudaginn með leikgleðina í farteskinu! Allir velkomnir!
-Blue Lagoon nefndin