Súpa, spjall og samvera 31.10. kl.18 í Sprettshöllinni.
Samverukvöld Sprettskvenna sem slógu í gegn síðasta vetur verða nú endurvakin vegna fjölda áskoranna. Takið frá þriðjudaginn 31.10. og fimmtudaginn 30.11. frá klukkan 18. Eins og áður verður boðið upp á súpu, brauð, kaffi og meðlæti fyrir krónur 1000,-. Við fáum góða gesti í heimsókn, kynnumst skemmtilegum konum, tökum með handavinnu eða ekki ;) og njótum þess að vera til. Við erum opnar fyrir öllum góðum hugmyndum frá ykkur um skemmtilegar uppákomur, endilega sendið okkur skilaboð á Facebook.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Kvennadeild Spretts