Viljum við koma ábendingu til félagsmanna og annarra sem aka um svæðið í Spretti að aka varlega um hverfið okkar. Töluvert hefur borið á því að fólk sé á hraðferð bæði inn og út úr hverfinu. Viljum við minna á að félagsmenn eru sumir hverjir með hesta á húsi allt árið um kring og einnig eru börn að leik í hverfinu.
Virðum hraðatakmarkanir, sýnum öðrum félagsmönnum tillitssemi og ökum varlega.