Töltgrúppa Röggu Sam hefur hlotið verðskuldaða athygli og nú er komið að lokapunkti vetrarins sem verður í formi glæsilegrar samsýningar þann 1. Maí næstkomandi í Samskipahöllinni.
Sýningin hefst klukkan 20.00 og mun allur ágóði sýningarinnar renna til Leiðarljóss sem er stuðningsmiðstöð fyrir fjölskyldur barna með sjaldgæfa og alvarlega langvinna sjúkdóma sem rekin er af sjálfseignarfélaginu Nótt og Dagur.
Forseti Íslands, Hr. Guðni Th. Jóhannesson heimsótti Leiðarljós nýlega ásamt forsetafrúsinni Elizu Reid. Forsetahjónin sýndu starfsemi Leiðarljóss mikinn áhuga og hafa boðað komu sýna á sýninguna sem er mikill heiður.
Einstakt sjónarspil um 130 kvenna í vel æfðum atriðum höfðar til allra, og ætti ekki að fara framhjá neinum.
Sýningin hefst klukkan 20.00 og stendur yfir í rúma klukkustund.
Ásamt atriðum Töltgrúppunnar úr Spretti og Herði verða glæsileg gestaatriði á boðstólnum, m.a. Töltslaufur Fákskvenna.
Miðasala er hafin í verslun Líflands og kostar 1.500 krónur inn.
Allur ágóði rennur óskertur til Leiðarljôss.
Takið kvöldið frá og njótum saman.