Hvetjum Sprettara til að taka þátt í Hestadögum.
Vonandi komast sem flestir Sprettarar í miðbæinn á sunnudag 30. apríl.
Skrúðreiðin hefst formlega við Hallgrímskirkju kl. 13:00.
Riðið verður niður Skólavörðustíg og um Bankastræti, Austurstræti, Pósthússtræti, Vonarstræti og inn á Austurvöll.
Þar gefst fólki tækifæri til að klappa hestunum og spjalla við knapana.
Frábær fjölskylduskemmtun!