Hið árlega karlatölt Spretts verður haldið laugardaginn 25. mars í Samskipahöllinni í Spretti.
Fjórir flokkar verða í boði í ár.
Flokkarnir eru:
T3 Ungmennaflokkur
T7 Minna vanir
T3 Meira vanir
T3 Opinn flokkur
Aðeins er hægt að skrá í gegnum skráningakerfið
www.sportfengur.com. Skráning hefur nú opnað og lýkur fimmtudaginn 23. mars. Skráning pr. hest er 4000 kr og er leyfilegt að skrá fleiri en einn hest.
Vegleg verðlaun eru í boði og mun sigurvegari í opna flokknum tryggja sér farseðil á töltkeppni ársins „Þeir alllra sterkustu" sem haldin verður í Samskipahöllinni 15.apríl n.k.
Hvetjum alla karla til þess að taka þátt í einu skemmtilegasta karlatölti landsins og hafa gaman saman.