Gámur fyrir rúlluplast verður staðsettur við reiðhöll Sprett frá klukkan
18:00 til 20:00 þriðjudaginn 21. mars. Athygli skal vakin á því að aðeins er heimilt að setja í hann rúlluplast. Þeir sem koma með plastið í plastpokum eða öðrum umbúðum verða að losa úr pokunum í gáminn, þannig að tryggt sé að aðeins fari í hann plast utan af heyrúllum eða -böggum. Verði misbrestur á þessu er útséð um að aftur fáist slíkir gámar á svæðið.
Umhverfisnefnd