Sprettskonur - Miðvikudaginn 15.02. kl. 19:30 verður haldinn í Samskipahöllinni skemmtilegasti aðalfundur norðan Alpafjalla.
Eftir stutt aðalfundarstörf tekur við uppstandarinn Ari Eldjárn og skemmtir okkur Sprettskonum af sinni alkunnu snilld.
Að vanda verður happdrætti, vínkynning og hugsanlega eitthvað fleira skemmtilegt...
Aðgangur að sjálfsögðu ókeypis!
Nú er bara að taka frá næsta miðvikudagskvöld og mæta :)