Að gefnu tilefni!
Það eru vinsamleg tilmæli Umhverfisnefndar Spretts að hesthúseigendur/leigendur sjái til þess að umhverfi í kringum hesthúsin séu til fyrirmyndar. Heyrúllur er ekki leyfilegar fyrir utan húsin og allt rusl algjör óþarfi.
Ef hesthúseigendur/leigendur geti ekki komið sínu heyi inn þá er hægt að hafa samband við Magga Ben framkvæmdastjóra Spretts s. 8933600 og fá að koma rúllunum á rúllursvæði Spretts. Um að gera að tala við nágranan og benda honum á ef eitthvað er eins og það á ekki að vera eða tilkynna framkvæmdastjóra / umhverfisnefnd!
Tökum höndum saman og hjálpumst að gera umhverfið okkar það lang flottasta!
Með von um góðar viðtökur.
F.h umhverfisnefndar.
Sigurður Tyrfingsson