Frábær mæting var á mátunina laugardaginn síðastliðinn. Þá stóð til boða fatnaður og allskyns hestavörur frá Equsana sem voru til sölu á frábæru verði. Vegna mikils áhuga og eftirspurnar verður opið aftur milli kl 18-20 í veitingasal Samskipahallarinnar á mánudaginn, 12. desember. Hægt verður að koma og máta. Í boði verða meðal annars úlpur, peysur og allskyns hestavörur. Tilvalið fyrir veturinn eða jafnvel sem jólagjöf.
Endilega kíkið við í Samskipahöllina
12. des milli kl 18-20.