• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Súpa spjall og samvera 1/11 kl.18.00

Skrifað þann Október 12 2016
  • Print
  • Netfang
Prjónavörur auglKæru Sprettskonur. Vegna fjölda áskoranna hefur stjórn Kvennadeildar Spretts ákveðið að bjóða okkur Sprettskonum upp á mánaðarlega samverustund þar sem við getum unnið handavinnu og rætt málin. Hugmyndin er að fá góða gesti í heimsókn sem geta frætt okkur um ýmiskonar handverk. Boðið verður upp á súpu og brauð gegn vægu verði og hugsanlega annað góðgæti. Við vitum að áhuginn er mikill og meðal Sprettskvenna leynast hæfileikar á handverkssviði. Ef þið hafið tillögur að gestafyrirlesara þá eru þær vel þegnar. Þriðjudaginn fyrsta nóvember verður fyrsta samverukvöldið. Allar að taka frá þriðjudagskvöldið 1/11 húsið opnar kl. 18.00.
Stjórn Kvennadeildar Spretts

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir