Landsmótfarar athugið félagsbúningur Spretts er eftirfarandi:
Svartur jakki með silfurlituðum briddingum og að sjálfsögðu merki félagsins, (einlitur svartur jakki gengur líka), hvít skyrta, grátt eða silfurlitað bindi, hvítar buxur, svört stígvél.
Stjórn Spretts hvetur keppendur sem keppa undir merkjum félagsins á landsmóti og stærri mótum til að klæðast félagsbúningnum.
Nokkrir keppnisjakkar eru til sölu og kostar jakkinn 35.000kr.
Kvennadeildin er með merki félagsins til sölu á 1.500kr , einnig fatnað merktan Spretti m.a. derhúfur, úlpur og peysur á börn og fullorðna.
Við verðum með glæsilegan hóp keppenda á Hólum sem verða enn föngulegri í félagsbúningi Spretts og stuðningsmenn merktir Spretti.
Þeir sem hafa áhuga á þessum varningi hafa samband við Matthildi í 865-7765 eða
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og Jóhönnu í 861-1186.
Verum sýnileg á Hólum