Skráning á gæðingamót Spretts og úrtöku fyrir LM er hafin og lýkur miðvikudaginn 1. júní á miðnætti. Skráningargjald í gæðingakeppni og tölt er kr 4.000 en fyrir börn og unginga kr 2.000. Skráningargjald fyrir skeiðgreinar og stökk kappreiðar er kr 3.000.
Athugið: Skráning fer ekki í gegn fyrr en skráningargjald hefur verið greitt! Þeir sem ætla að skrá sig í áhugamannaflokk verða að tilkynna það með því að senda póst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Boðir verður upp á eftirfarandi flokka:
A-flokk gæðinga
A-flokk gæðinga áhugamenn
B-flokk gæðinga
B- flokk gæðinga áhugamenn
C- flokk gæðinga
Ungmenni
Unglingar
Börn
Tölt
Skeið 100m, 150m, 250m
300 m Stökk
Pollar teymdir og pollar ríðandi ef veður leyfir.
Á gæðingamótinu verður boðið upp á sérstakan flokk fyrir vana polla. Pollum er ekki sætaraðað en allir frá þátttökuverðlaun. Pollum er ekki heimilt að mæta á stóðhestum.
Pollar þurfa ekki að skrá sig í gegnum Sportfeng heldur á staðnum.
Glæsileg verðlaun verða í öllum greinum og að auki verður gæðingur mótsins valinn sem og knapi mótsins.
Áhugamenn í A og B flokki ríða með reyndari knöpum en áhugamenn ríða svo sérstök úrslit sunnudaginn 5. júní og þurfa þeir sem ætla að skrá sig í áhugamannaflokk að tilkynna það með því að senda póst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.(knapi + hestur + keppnisflokkur)
Svanstyttan er veitt til heiðurs Svani Halldórssyni, stofnfélaga Gusts og síðar Spretts. Svanur hefur ávallt lagt mikið upp úr því að vera prúðbúinn, snyrtilegur og á vel hirtum hesti.
Svansstyttan er veitt Sprettsfélaga sem klæðist félagsbúningi Spretts á mótum og þykir ávallt vera til fyrirmyndar hvað varðar prúðmannlega reiðmennsku, klæðaburð og hirðingu hests, utan vallar sem innan
Vinsamlega veitið því athygli að í gæðingakeppni þarf hesturinn að vera í eigu Sprettsfélaga. Keppendur eru beðnir að skoða vel reglur LH sem gilda um þátttöku í gæðingakeppni og þá sérstaklega.
Töltkeppni og skeið er opið öllum.
Ekki er hægt að skrá í unghrossakeppina í gegnum sportfeng heldur verður skráð í gegnum This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it., síðasta lagi fimmtudag 2. júní.
Boðið verður upp á 4v og 5v unghrossakeppni. Nýjar reglur um framkvæmd má sjá undir ræktun. Skráningagjald 2.000 og verður greitt á staðnum.
# reglur varðandi keppnishesta / réttindi til skráningar
# reglur varðandi fótabúnað, beislisbúnað og útbúnað knapa
# járningar