Það er öllum velkomið að slást í hópinn. Veðurspáin lítur vel út fyrir laugardaginn og því er tilvalið að gera sér glaðan dag með hressum og kátum Spretturum.
Við munum safnast saman við Samskipahöllina, og lagt verður af stað kl. 13.30. Riðið verður í Gjárétt þar sem Kvennadeildin tekur á móti hópnum með veglegri veitingasölu.
Hlökkum til að sjá ykkur á laugardaginn,
Sprettkórinn.