Skráningarfrestur á Hestamennsku II rennur út á morgun, mánudaginn 1.feb. Ef næg þátttaka næst hefst námskeiðið 3.febrúar.
Skráningarfrestur í paratíma hjá Robba Pet rennur einnig út 1.feb, einungins er eitt laust pláss hjá Robba, fyrstur kemur fyrstur fær. Fyrsti tíminn verður 3.ja febrúar.
Opið fyrir skráningar á helgar námskeið hjá Jóhanni Ragnarssyni sem verður 12.-14.febrúar.
Enn geta Ungir Sprettarar bæst í hópinn hjá Röggu Sam, laust er í tíma á miðvikudögum.
Hvetjum unglinga sem vilja vera með til að skrá sig.
Vegna eftirspurnar höfum við bætt við hópi í Tölt/keppnisánámskeið fyrir konur hjá Röggu Sam.
Laust er í paratíma á þriðjudögum 21-22 og 4 manna tíma á miðvikudögum kl 21-22.
Allar skráningar fara fram í gegnum Sportfeng
Fræðslunefnd Spretts