Námskeiðahald
Helgarnámskeið með Antoni Páli Níelss. 29.-31.jan.
Helgina 29. 30. og 31. Janúar 2016 mun Sprettur halda helgarnámskeið með reiðkennaranum Antoni Páli Níelssyni.Anton Páll Níelsson er menntaður reiðkennari B frá Háskólanum á Hólum.Hann hefur kennt við Hólaskóla í fjölda mörg ár auk þess að sinna reiðkennslu víða um heim og rækta hross frá Syðra-Holti í Svarfaðardal.Anton Páll hefur verið einn af þjálfurum íslenska landsliðsins í hestaíþróttum sem og nokkrum erlendum landsliðum, t.d. því sænska og austurríska.Anton Páll er þekktur fyrir einfalda, hreinskilna, hestvæna og mjög árangursríka nálgun í reiðkennslu sinni. Hann er án efa einn af allra bestu reiðkennurum landsins.Námskeiðið verður haldið föstudaginn 29.janúar, laugardaginn 30.janúar og sunnudaginn 31.janúar.Kennslan fer fram í Hattarvallahöllin og SamskipahöllinniKennslan fer fram í einkatímum alla dagana.
Mælst er til þess að nemendur fylgist með kennslu hjá samnemendum sínum.Föstudagurinn 29.jan verður kennt 1x30mín einkatími hver nemandi. Tveir valmöguleikar eru í boði.2x30mín einkatími - laugardag og sunnudag.
Hentugt fyrir hross sem eru ekki komin í mikla þjálfun.
Möguleiki er á að mæta með sitthvort hrossið í sitthvorn tímann.1x55mín einkatími – laugardag og sunnudag.
Hentugt fyrir hross sem eru komin í góða þjálfun.
Sama hrossið alla/báða dagana.Einungis eru í boði 8 pláss.Verð kr.43.000. kr pr þátttakenda.Skráning fer fram í gegnum Sportfeng
Fræðslunefnd Spretts