Námskeiðahald
Þrautabraut (Trec) sýnikennsla
Föstudaginn 8.jan kl 18:00 í Samskipahöllinni.Ætlar Súsanna Sand og henni til aðstoðar Súsanna Katarína verða með sýnikennslu.Trec er frábær leið til að auka áræðni, kjark, þolinmæði og lipurð í bæði hesti og knapa.Þú kynnist og upplifir hestinn á annan og spennandi hátt.
Ætla þær mæðgur að koma með bæði vana hesta og sýna hvernig maður ber sig að með óvanan hest.
Trec er eykur fjölbreytni í þjálfun og er einnig skemmtileg keppnisgrein. Þrautirnar eru margar og fjölbreyttar, dæmd er reiðmennska, samspil, þjálni og flæði milli Þrauta, ekki tímataka.Skemmtileg tilbreyting fyrir alla hesta og knapa.
Aðgangur ókeypis
Að sýnikennslunni lokinni verður brautin áfram höfð uppi og verður hún einnig uppi á laugardag, þá geta þeir sem vilja spreytt sig í brautinni.Miðvikudaginn 13.jan hefst námskeið í Trec og verður Súsanna Sand kennari á því námskeiði.Kennt verður í Hattarvallahöllin 1x í viku, 6 skipti. 4 verða saman í hóp.
Verð 17000.kr pr þátttakenda.
Skráning fer fram í gegnum http://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=add