Námskeiðahald
Opið fyrir skráningar á námskeið
Nú hefur verið opnað fyrir skráninga á ýmis námskeið hjá Spretti og munu fleiri námskeið bætast við á næstu dögum.
Skráningar fara fram gegnum Sportfeng.
Þau námskeið sem nú þegar er búið að opna fyrir eru, tveggja manna tímar hjá Robba Pet, tveggja manna tímar hjá Súsönnu Sand, Treck námskeið hjá Súsönnu Sand, keppnisnámskeið fyrir konur hjá Röggu Sam, námskeið fyrir óörugga og minna vana hjá Sigrúnu Sig.
Ekki er búið að opna fyrir skráninga á Knapamerki eða námskeið fyrir börn og unglinga en það verður vonandi á allra næstu dögum. Sprettur er að fara að taka í notkun Nora kerfi sem margir þekkja og er það kerfi tengt við Kópavogsbæ og mun því auðvelda okkur að nýta tómstundastyrki sem börn og unglingar eiga rétt á frá bæjarfélaginu.
Fræðslunefnd Spretts