Námskeiðahald
Gangtegundanámskeið fyrir börn og unglinga
Hestamannafélagið Sprettur mun í sumar bjóða upp á Gangtegundanámskeið fyrir börn.
Námskeiðið er ætlað börnum og unglingum sem eru orðin vel hestfær og ríða út sjálf/stjórna sínum hestum sjálf.
Börnin koma sjálf með sína eigin hesta og sinn búnað. Lögð verður áhersla á að ríða allar gangtegundirnar (nema skeið) og gera gangskiptingar á hringvelli.
Auk þess verður farið í lengri og styttri reiðtúra, farið yfir ásetu og stjórnun, jafnvægisæfingar og fleira.
Einungis fimm börn í hverjum hóp.
Mikið aðhald og kennsla. Reiðkennari er Þórdís Anna Gylfadóttir.
Kennt verður frá mánudegi til föstudags kl.9-12:30.
Námskeiðið fer fram á Dreyravöllum 1 og þar verða hestarnir staðsettir á meðan námskeiðinu stendur.
Námskeið 1: 22.júní til 26.júní
Námskeið 2: 29.júní til 3.júlí
Skráning fer fram í gegnum http://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=add
Skráning er hafin og verður opin til og með 18.júní.
Hesthúsapláss, hey og spænir er innifalið í verði.
Krakkarnir koma sjálf með nesti.
Verð kr.23.000.
Enn frekari upplýsingar er hægt að nálgast í síma: 868-7432 (Þórdís) eða á netfanginu This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.