Við erum ekki hætt að bjóða áhugasömum Spretturum uppá námskeið.
Nýtt námskeið hjá Sigrúnu Sig hefst 13. apríl.
Kennt verður á mánudögum í Hattarvallahöllin. Sigrúnu þarf varla að kynna og verður námskeiðið með sama sniði og hún hefur haft, 4 saman í hóp. Þetta námskeið verður 4 tímar, þeas 4. maí verður síðasti tíminn.
Verð 10.000pr þátttakenda.
Nýtt unglinganámskeið hefst 15.apríl.
Ragga Sam mun sjá um þetta námskeið. Þetta námskeið er ætlað minna vönum unglingum 13-19 ára. Kennt verður á miðvikudögum í Hattarvallahöllinni, þetta námskeið verður 4 tímar, síðasti tíminn verður 6.maí.
Verð 7500. Pr þátttakenda.
Skeiðnámskeið hjá Ella Sig hefst 14.apríl.
Fyrsti tíminn verður bóklegur. Allir verða saman í bóklegri kennslu.
Kennt verður á þriðjudögum og föstudögum, fyrst verður kennt í Hattarvallahöllin og síðan færist námskeiðið út á völl. 4-5 saman í hóp.
Verð 25.000 pr þátttakenda.
Allar skráningar fara fram í gegnum
http://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=addFræðslunefnd Spretts