Nýtt keppnisnámskeið hefst á þriðjudaginn 3.mars kl 20:30. Kennari verður Ragga Sam.
Þetta er í raun framhald af því námskeiði sem er ný lokið en er pláss fyrir nýjar konur í hópnum.
Stefnan er sett á Kvennatöltið 18.aprí og einnig á Svellkaldar 21.mars fyrir þær sem áhuga hafa á því. Þetta námskeið verður 8 skipti, 7 skipti í hólfi 3 í 4-5 manna hóp og verður 8. tíminn þannig að allar þær konur sem eru á keppnisnámskeiði fyrir konur fá þar tækifæri til að æfa sig í allri höllinni undri dyggri leiðsögn Röggu. Þessi síðasti tími verður 2-3 dögum fyrir Kvennatöltið sjálft.
Skráning fer fram í gegnum Sportfeng.
Verð er 20.000 pr þátttakenda
Kennt verður í hólfi 3 á þriðjudögum
Fræðslunefnd Spretts