Námskeiðahald
Trec námskeið hefst 13.feb nk.
Frábært námskeið fyrir alla, kennt verður á föstudögum í Hattarvallahöllinni.
Kennari Erla Guðný.
Trec þrautabraut verður kennd á þessu námskeiði.
Skráning fer fram í gegnum Sportfeng og er síðasti skráningardagur 12.feb (fimmtudagur)
Kennt verður milli 17-18 og/eða 18-19, fer eftir fjölda þátttakenda.
Lámarks aldur er 10 ára.
Verð 10500 fyrri börn og unglinga, 15000 fyrir fullorðna
Lámarks þáttaka eru 4.
Hin framandi skammstöfun TREC er mörgum íslendingum ókunn en hún kemur frá Frakklandi og stendur fyrir Techniques de Randonnée Équestre de Compétition. Um er að ræða hestaíþróttagrein sem heyrir undir heimssambandið FITE (International Equestrian Tourism Federation) sem við Íslendingar urðum aðilar að á síðasta ári og er það stefna LH að efla þessa grein hér á landi. Keppnisgrein þessi hefur nefnilega notið mikilla vinsælda erlendis, sérstaklega meðal frístundareiðmanna, og er því kærkomin viðbót við þær keppnisgreinar sem hafa nú þegar fest sig í sessi hérlendis.Þetta er þrískipt keppnisgrein þar sem sami hesturinn er notaður í allar þrjár greinar og miðar að því að finna sterkasta parið út úr þessum þremur þáttum í lokin. Um er að ræða gangtegundakeppni þar sem riðið er hratt fet og hægt stökk, þrautabraut þar sem farið er í gegnum 16 mismunandi þrautir sem reyna virkilega á traust milli manns og hests og að lokum nokkurskonar víðavangs-ratleik þar sem farnir eru 12-45 km.Fjölbreyttar þrautir• 32 þrautir til, hægt að velja úr þeim til að setjasaman þrautabraut• Trec er fyrir alla• Allar hestgerðir• Mismunandi landslag og aðstæður bjóða uppá mismunandi Trec brautir.
Fræðslunefndin