• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Námskeiðahald

Verkleg kennsla í Knapamerkjum 4 og 5 hefst 31.okt. 2022

Skrifað þann September 16 2022
  • Print
  • Netfang

Knapamerkipng

Knapamerki eru frábær leið fyrir þá sem vilja sækja stigskipt nám í hestamennsku og bæta við
þekkingu sína og færni sem reiðmenn. Námið hentar öllum sem eru 12 ára og eldri, bæði
byrjendum sem og lengra komnum reiðmönnum. Minnum á að hægt er að nýta frístundastyrkinn
fyrir yngri nemendur (kemur sjálfkrafa sem val í Sportabler). Einnig er hægt að fá kvittun fyrir
námskeiðunum sem fullorðnir geta nýtt sér hjá sínu stéttarfélagi.


Möguleiki er á að bjóða upp á sér hóp fyrir fullorðna í Knapamerkjunum ef áhugi er fyrir hendi.
Knapamerki 4 verður kennt á mánudögum kl.18:30-19:30 (Samskipahöll) og föstudögum kl.17-18
(Húsasmiðjuhöll)


Knapamerki 5 verður kennt á mánudögum kl.19:30-20:30 (Samskipahöll) og föstudögum kl.18-19
(Húsasmiðjuhöll)


Knapamerki 4 er samtals 22 tímar
Knapamerki 5 er samtals 26 tímar


Verð fyrir KM4 fyrir börn, unglinga og ungmenni er 55.000kr
Hlekkur á skráningu er hér;
https://www.sportabler.com/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MTM0NjE=?


Verð fyrir KM4 fyrir fullorðna er 75.000kr
Hlekkur á skráningu hér;
https://www.sportabler.com/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MTM0NjI=?


Verð fyrir KM5 fyrir börn, unglinga og ungmenni er 65.000kr
Hlekkur á skráningu hér;
https://www.sportabler.com/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MTM0NjM=?


Verð fyrir KM5 fyrir fullorðna er 85.000kr
Hlekkur á skráningu hér;
https://www.sportabler.com/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MTM0NjQ=?


Kennarar verða Þórdís Anna Gylfadóttir og Friðdóra Friðriksdóttir, reiðkennarar frá Hólaskóla.
Hér er hægt að kynna sér betur Knapamerkin á heimasíðunni;  http://knapamerki.is/

Allar námskeiðsfréttir

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Námskeiðahald