Knapamerki eru frábær leið fyrir þá sem vilja sækja stigskipt nám í hestamennsku og bæta við
þekkingu sína og færni sem reiðmenn. Námið hentar öllum sem eru 12 ára og eldri, bæði
byrjendum sem og lengra komnum reiðmönnum. Minnum á að hægt er að nýta frístundastyrkinn
fyrir yngri nemendur (kemur sjálfkrafa sem val í Sportabler). Einnig er hægt að fá kvittun fyrir
námskeiðunum sem fullorðnir geta nýtt sér hjá sínu stéttarfélagi.
Möguleiki er á að bjóða upp á sér hóp fyrir fullorðna í Knapamerkjunum ef áhugi er fyrir hendi.
Knapamerki 3 verður kennt á þriðjudögum kl.19-20 (Samskipahöll) og fimmtudögum kl.19-20
(Húsasmiðjuhöll). Knapamerki 3 er samtals 17 tímar.
Verð fyrir KM3 fyrir börn, unglinga og ungmenni er 34.000kr.
Hlekkur á skráningu hér;
https://www.sportabler.com/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MTM0NDQ=?
Verð fyrir KM3 fyrir fullorðna er 49.000kr.
Hlekkur á skráningu hér;
https://www.sportabler.com/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MTM0NDc=?
Kennarar verða Thelma Rut Davíðsdóttir og Ylfa Guðrún Svafarsdóttir, reiðkennarar frá
Hólaskóla.
Hér er hægt að kynna sér betur Knapamerkin á heimasíðunni; http://knapamerki.is/