Vinsælu námskeiðin hennar Sigrúnar Sigurðardóttur halda áfram í maí. Námskeiðin eru almenn reiðnámskeið fyrir fullorðna sem vill styrkja leiðtogahlutverk sitt, öðlast betri færni í samskiptum við hestinn sinn og læra að skilja hestinn betur.
Þetta námskeið er frábært fyrir einstaklinga sem til dæmis vilja auka kjark og þor, byrja aftur eftir hlé í hestamennsku eða einfaldlega byrja með nýja hesta.
Námskeiðið hefst þann 2.maí 2022, samtals 5 skipti og lýkur námskeiðinu 30.maí. Kennt verður á mánudögum, hver tími er 45mín, hámark 4 saman í hóp. Þrjár mismunandi tímasetningar eru í boði; 15:15-16:00,16:00-16:45 og 16:45-17:30. Kennt verður í Samskipahöllinni, hólfi 3. Verð er 17.000kr
Skráning fer fram á Sportabler, hér er hlekkur á skráningu;
Fyrir hópinn kl.15:15-16:00;
https://www.sportabler.com/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6ODU5NQ==?
Fyrir hópinn kl.16:00-16:45
https://www.sportabler.com/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6ODgzNA==?
Fyrir hópinn kl.16:45-17:30
https://www.sportabler.com/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6ODgzNQ==?