Sigvaldi Lárus Guðmundsson reiðkennari frá Hólaskóla býður upp á námskeið ætluð ungum hrossum í þjálfum. Miðað er við grunnþjálfun hrossa, hross sem hafa lokið frumtamningu og eru að fara að stíga næstu skref í þjálfun. Einnig hross sem eru meira riðin en þurfa meiri tamningu. Byrjað verður á sameiginlegum atriðum en svo verður farið í einstaklingsmiðaðari kennslu. Kenndir verða 3 tímar fyrir jól, svo verður gefið frí um jól og áramót sem gefur nemendum kost á að vinna í verkefnunum sjálfir, svo verða kenndir 3 tímar eftir áramót og þá verður hægt að svara og vinna í þeim verkefnum sem upp hafa komið.
Sigvaldi er afar reynslumikill tamningamaður og þjálfari. Hann hefur starfað sem reiðkennari á Hólum og við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri við mjög góðan orðstír, kenndi Reiðmanninn og er nú yfirreiðkennari Hæfileikamótunar LH fyrir krakka á aldrinum 14-17 ára ásamt því að hafa tamið og þjálfað víða til margra ára.
Kennt verður á mánudögum í Samskipahöll, hver tími er 40-45 mín., 2-3 saman í hóp. Kennt verður eftirtalda daga; 29.nóv., 6.des., 13.des., 10.jan., 17.jan og 24.jan. Samtals 6 skipti.
Verð fyrir unglinga/ungmenni 35.000kr. Skráning fer fram á tölvupósti, sendið póst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Verð fyrir fullorðna er 44.000kr. Skráning fer fram á www.sportfengur.com