Unghrossanámskeið og tveggjamanna tímar hjá Ölmu Gullu.
Námskeiðið hefst 17.sept
Fræðslunefnd Spretts ætlar að bjóða uppá námskeið fyrir fólk sem vill fá aðstoð með ung hross, taka næstu skref. Námskeiðið er ætlað þeim sem eru með reiðfær/ lítið gerð hross og vilja fá aðstoð við næstu skref td við gangsetningu.
Einnig ætlar Alma að bjóða uppá tveggja manna tíma líkt og hún gerði sl haust og vetur fyrir fólk sem vill aðstoð með sín hross.
Tímarnir verða merktir í Sportfeng unghross eða tveggja manna tímar til þess að allir fái sem mest út úr sínum tíma.
Kennt verður frá kl 15:30 á föstudögum og frá kl 9:00 á laugardögum, 40 mín í senn, tveir saman í hverjum tíma, 8 reiðtímar verð pr þátttakenda er 40.000kr.
Kennt verður í Samskipahöllinni
Kennt verður 17.18.24.25 sept 1.2.8. og 9.okt
Skráning er opin í gegnum Sportfeng