Unghrossanámskeið og tveggjamanna tímar hjá Ölmu Gullu.
Námskeiðið hefst 13.jan.
Fræðslunefnd Spretts ætlar að bjóða uppá námskeið fyrir fólk sem vill fá aðstoð með ung hross, taka næstu skref. Námskeiðið er ætlað þeim sem eru með reiðfær/ lítið gerð hross og vilja fá aðstoð við næstu skref. Einnig ætlar Alma að bjóða uppá tveggja manna tíma líkt og hún gerði sl haust og vetur fyrir fólk sem vill aðstoð með sín hross, taka næstu skref.
Einnig er hún með tveggja manna tíma fyrir alla sem vilja fá kennslu fyrir sig og sinn hest.
Tímarnir verða merktir í Sportfeng unghross eða tveggja manna tímar til þess að allir fái sem mest út úr sínum tíma.
Kennt verður frá kl 16:00 og frameftir kvöldi, 40 mín í senn, tveir saman í hverjum tíma, 8 skipti verð pr þátttakenda er 40.000kr.
Kennt verður 13. 15. 19. 21. 25. 28. 29.jan og 5.feb
Skráning er opin í gegnum Sportfeng