Hestamennsku námskeið verður haldið á mánudögum milli kl.17-19 í Samskipahöllinni.
Námskeiðið byrjar mánudaginn 20. janúar. Kennt er 10 skipti. Námskeiðið er ætlað börnum og unglingum sem geta riðið sjálf. Skipt verður í hópa eftir getu. Hópur 1; þeir sem geta riðið fet og brokk/tölt. Hópur 2; þeir sem geta riðið allar gangtegundir (nema skeið).
Þema námskeiðsins í vetur verða gangtegundir og undirbúningur fyrir létta keppni, s.s. T7 og V5. Auk þess verður lögð áhersla á að fara í leiki og hafa gaman.
Kennarar verða Sigrún Sigurðardóttir og Þórdís Anna Gylfadóttir.
Verð fyrir hvern þátttakenda er 28.500kr
Skráning fer fram á sportfengur.com og stendur til 16.janúar. Einnig verður hægt að skrá í gegnum https://umsk.felog.is/ fyrir þá sem vilja nýta frístundastyrki sína.
Fræðslunefnd Spretts