Pollanámskeið hefst 11.janúar og verður kennt fyrir hádegi á laugardögum í Húsasmiðjuhöllinni. Nánari tímasetning fer eftir fjölda nemenda. Samtals er kennt 6 skipti. Þetta námskeið er ætlað þeim allra yngstu sem eru að stíga sín fyrstu skref á hesti.
Kennari verður Þórdís Anna Gylfadóttir
Verð fyrir hvert barn er 9000kr
Skráning fer fram á sportfengur.com