Helgina 7.-9.feb 2020 verður járninganámskeið í Spretti.
Tilvalin jólagjöf
Kennari verður Kristján Elvar Gíslason.
Kristján er menntaður járningameistari, hann hefur kennt járningar meðal annars í Hólaskóla og haldið námskeið víða.
Bóklegur tími verður á föstudeginu. Verklegir tímar á laugardeginum og sunnudeginum.
Kennt verður fremst, (rennunni) í Samskipahöllinni.
Verð fyrir hvern þátttakenda er 25.000kr
Skráning fer fram í gegnum Sportfeng.
Námskeiðið er öllum opið.
Fræðslunefnd Spretts