Nýtt námskeið hjá Spretti fyrir dömur á öllum aldri.
Námskeiðið hefst 5.feb.
Kennt verður á miðvikudögum í Samskipahöllinni frá kl 19:00-21:00. Hópnum verður skipt í tvennt og þjálfað vikulega. Fyrsta stóra samæfingin verður 26.feb. og svo verður aftur þjálfað í tvennu lagi til næstu samæfingar.
Námskeiðinu lýkur með sýningu á atriði á uppskerusýningu í Spretti í byrjun maí.
Kennari verður Ragnheiður Þorvaldsdóttir.
Verð fyrir hverja konu er 30.000kr
Skráning fer fram í gegnum Sportfeng.
Fræðslunefnd Spretts