Fyrsta helgarnámskeið vetrarins 2020 verður hjá Þórarni Ragnarssyni. Helgina 10.-12.jan
Þórarinn er útskrifaður reiðkennari frá Hólaskóla. Hann hefur látið að sér kveða á keppnisbrautinni hvort sem er í gæðingakeppni eða íþróttakeppni. Einnig hefur hann náð góðum árangri á kynbótabrautinni.
Kennt verður í einkatímum, 30.mín á föstudeginum og 45.mín á laugard. og sunnudeginum. Aðeins 10 pláss í boði.
Verð fyrir hvern þátttakenda er 29.000kr
Skráning er opin í gegnum Sportfeng.
Sprettarar ganga fyrir í skráningu.
Skráningarfrestur er til 7.jan.
Fræðslunefnd Spretts