Námskeið í anda þeirra námskeiða sem Matti hefur kennt í vetur.
Lögð verður áhersla á stjórnun hestsins og að auka sjálfstraust nemenda á hestbaki, m.a. í gegnum leiki.
Hugmyndin er að hafa námskeiðið fjölbreytt, byggt á kennslu og leikjum inni í höll, úti á keppnisvellinum, í reiðgerðum og í reiðtúrum þegar veður leyfir.
Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum.
6 skipti. Fyrsti tíminn veruðr 6.maí
Skráning er opin í gegnum Sportfeng. Skráningarfrestur er til og með 5.maí
Verð fyrir hvern þátttakandna er 6000kr
Fræðslunefnd Spretts