Keppnisnámskeið fyrir barnaflokk (10-13 ára) unglingaflokk (14.-17. ára) og ungmennaflokk (18.-21.árs) hefst 3. apríl.Keppnisnámskeiðið er hugsað þannig að kennt er einu sinni í viku á miðvikudögum.
Námskeiðið hefst miðvikudaginn 3.apríl.
Í upphafi námskeiðs setja nemendur sér markmið. Að þessum markmiðum verður síðan unnið hörðum höndum. Unnið er með einstaklingsmiðaðar þarfir knapa og hests.
Hámarksfjöldi þáttakenda eru 15 nemendur.Tímarnir skiptast í einka- og hóptíma.
Kennari á námskeiðinu verður Hekla Katharina Kristinsdóttir og mun hún jafnframt vera til staðar fyrir keppendur á íþrótta og gæðingamótum félagsins.
Verð fyrir hvern þátttakanda er 36.000.
Skráning fer fram í gengum Sportfeng.
Hekla Katharína Kristinsdóttir er starfandi reiðkennari og þjálfari. Hún rekur tamningastöð ásamt eiginmanni sínum í Árbæjarhjáleigu 2.
Hekla útskrifaðist sem reiðkennari frá Hólaskóla árið 2012 með hæstan samanlagðan árangur í reiðkennslu og reiðmennsku. Strax í framhaldinu kenndi hún einn vetur á Hólum.
Hekla var mjög atkvæðamikil í barna-, unglinga- og ungmennaflokki á sínum tíma og á þar landsmótssigra sem og marga íslandsmeistaratitla. Einnig varð hún heimsmeistari ungmenna í fjórgangi árið 2011.
Í fullorðinsflokkum hefur hún orðið samanlagður íslandsmeistari í fjórgangsgreinum og verið í úrslitum í B-flokki á landsmóti ásamt mjög góðum árangri á öðrum stórum mótum. Einnig hefur hún sýnt mörg kynbótahross í góða dóma.
Hekla hefur mikla reynslu af keppni og þjálfun hrossa. Einnig hefur hún mikla ástríðu fyrir kennslunni og við hlökkum til samstarfs við hana.
Fræðslunefnd Spretts