Pollanámskeið hefst 9.feb
Námskeiðið er ætlað yngsta hestafólkinu okkar, þau sem eru að stíga sín fyrstu skref á hesti, í taumi með foreldrum eða laus td inni í reiðhöll.
Foreldrar verða að gera ráð fyrir að ganga með börnunum á meðan á tímanum stendur, ef þess þarf.
Rúna Björg er menntuð frá Hólaskóla.
Kennt verður á laugardögum, til skiptis fyrir hádegi og seinnipart laugardags.
Hver tími verður 40 mín, 6 skipti
4-5 börn verða saman í hóp.
Verð fyrir hvert barn er 8000kr
Skráning er opin í gegnum
https://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=add