• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Námskeiðahald

Hnakkakynning 19.jan

Skrifað þann Janúar 08 2019
  • Print
  • Netfang
Hilbarhnakkur2






Susanne Braun





















Hilbar hnakkarkynning 19.01.2019 kl. 9-17
í Samskipahöllinni.

Hilbar fyrirtækið framleiðir gæða hnakka með ullarfyllingu og breiðum eða extra-breiðum (anatomic) undirdýnum. Knapinn situr auðveldlega á réttum stað á miðju hnakksins sem hjálpar bæði með þyngdardreifingu knapans og jafnvægi hestsins.
Til eru mismunandi týpur fyrir allar gerðir hesta og knapa.
Hilbar fyrirtækið verður með úrval af hnökknum til sýnis og prufu í reiðhöllinni.
Mælt er með að fólk mæti með hesta sína og eigin hnakka ef áhugi er fyrir því að láta meta reiðtygin. Hilbar hnakkarnir eru með fjaðrastáltré og yrði það stillt inn fyrir hvern hest á staðnum til að tryggja bestu legu hnakksins.
Anoush Bargh, eigandi þýska fyrirtækisins Hilbar og Dr Susanne Braun, dýralæknir og kíropraktor verða á staðnum með fræðsluefni, leiðbeiningar og aðstoða þar sem margar spurningar geta vaknað eins og t.d.:

Hvað gerir hestinum kleift að bera þyngd á bakinu?
Hvar á hnakkurinn að vera?
Hvaða hluti baksins á hestinum er sterkastur?
Passar hnakkurinn á hestinn ?
Getur hnakkurinn skaðað hestinn ef hann liggur ekki á réttum stað?

Við skoðum hesta og knapa á fræðilegan hátt og leiðbeinum viðkomandi samkvæmt niðurstöðum á því mati.
Hlökkum til að sjá ykkur!

Allar námskeiðsfréttir

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Námskeiðahald