Námskeið fyrir hressa krakka. Lagt er áhersla á að ná betri stjórn á hesinum með leikjum og þrautum. Aðal atriðið er að hafa gaman með hestunum. Námskeiðið er hugsað til að auka áhuga á hestum og styrkja samband og barna og hestanna og auka sjálfstraust. Styrkja stjórnun og gangtegundir í gegnum leiki og þrautir.
Námskeiðið er ætlað krökkum og unglingum á aldrinum 9-16 ára.
Kennari er Matthías Kjartansson, tamningamaður og menntaður reiðkennari frá Háskólanum á Hólum.
Kennt verður á föstudögum, námskeiðið byrjar 25.jan. og er 8 skipti ( kennt verður 25.jan og 1.feb og eftir það annan hvern föstudag)
Verð fyri hvern þáttakenda er 14.000kr
Skráning er opin í gengum
https://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=add
Fræðslunefnd Spretts