Bókleg kennsla mun fara fram í október /nóvember í samstarfi við hestamannafélagið Fák.
Markmiðið með þessu er að auka gæði bóklegu kennslunnar og jafnframt gera námið skilvirkara og hagkvæmara fyrir nemendur.
Stefnt er á að kenna verklega hluta knapamerkja 1 og 2 fyrir áramót 2018, nánari tímasetningar verða auglýstar fljótlega.Rétt er að taka fram að nemendur þurfa að ljúka bæði bóklegu og verklegu prófi til að fá prófskírteini.
Athugið að ekki verður boðið upp á bóklegt nám í knapamerkjum aftur fyrr en næsta haust. Námskeiðið er opið öllum þeim er hafa áhuga á að ljúka bóklegu námi í haust.
Lágmarks þátttaka er fjórir á hverju stigi.
Knapamerki 1
fimmtud. 18/10 og 25/10 kl. 17.00-18.30 og 1/11 17.00-18.30
Knapamerki 2
18/10 og 25/10 og 1/11 kl. 18.30-20
Knapamerki 3
þriðjud. 23/10-30/10-6/11-13/11 17.00-18.30
Knapamerki 4
þriðjud. 23/10-30/10-6/11-13/11 18.30-20.00
Knapamerki 5
Sækja alla tíma í KM1-2-3-4 og síðan verður bætt við 4 tímum fyrir próf.
Kennt í Guðmundarstofu (Gamla félagsheimilið). Kennari verður Sigrún Sigurðardóttir.
Skráning í bóklega kennslu er á
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. Fram þarf að koma í hvaða km viðkomandi er að skrá og svo nafn, kt, heimili og sími
Nemendur þurfa að útvega sér kennslubækur fyrir fyrsta tímann og fást þær í m.a. í Líflandi og Ástund.