Mikil eftirspurn hefur verið í vetur eftir tímum hjá Robba Pet. Bætum við því við nýju námskeiði hjá honum sem hefst 9. apríl.
Kennt verður á mánudögum 4 skipti.
Síðasti tímínn verður 30.apríl.
Robbi hefur verið vinsæll reiðkennari hjá okkur í Spretti hvort sem er hjá byrjendum eða lengra komnum.
Skráning er opin í gegnum Sporfeng.
Verð fyrir hvern þátttakanda er 21000.kr
Skráningarfrestur er til 7.apríl.
Fræðslunefnd Spretts