Opið fræðsluerindi Súsönnu Sand fyrir börn, unglinga, ungmenni og forráðamenn þeirra.
Þriðjudaginn 16. janúar kl. 18:00 verður fyrsti tími námskeiðsins Undirbúningur fyrir keppni.
Allir sem eru skráðir á námskeiðið eru beðnir um að mæta.
Mæting er í salnum á 2. hæð Samskipahallarinnar.
Í tímanum mun Súsanna Sand halda fræðsluerindi sem opið er öllum börnum, unglingum, ungmennum og forráðamönnum þeirra.
Við hvetjum áhugasama til að mæta og hlusta á Súsönnu og bendum á að skráningarfrestur á námskeiðið Undirbúningur fyrir keppni er til 21.jan.
Fræðslunefndin.