Nú fer að hefjast pollanámskeið í Spretti fyrir veturinn 2018.
Skráning hefst í dag en henni lýkur þann 11. janúar.
Námskeiðið hefst þann 14. janúar og er kennt á sunnudögum í Húsasmiðjuhöllinni.
Kennd verða fimm skipti.
Kennsla fer fram kl.17:00 á sunnudögum, 40mín. Kennarinn er Þórdís Anna Gylfadóttir.
Námskeiðið er ætlað fyrir okkar yngstu knapa, frá 5 ára aldri. (5 ára á árinu)
Verð er 9000.krónur á einstakling
Skráning fer fram í gegnum Sportfeng.
Fræðslunefnd Spretts