Helgina 6. og 7. maí 2017 mun Sprettur halda helgarnámskeið með reiðkennaranum Antoni Páli Níelssyni.
Anton Páll Níelsson er menntaður reiðkennari B frá Háskólanum á Hólum.
Hann hefur kennt við Hólaskóla í fjölda mörg ár auk þess að sinna reiðkennslu víða um heim og rækta hross frá Syðra-Holti í Svarfaðardal.
Anton Páll hefur verið einn af þjálfurum íslenska landsliðsins í hestaíþróttum sem og nokkrum erlendum landsliðum, t.d. því sænska og austurríska.
Anton Páll er þekktur fyrir einfalda, hreinskilna, hestvæna og mjög árangursríka nálgun í reiðkennslu sinni. Hann er án efa einn af allra bestu reiðkennurum landsins.
Námskeiðið verður haldið laugardaginn 7.maí og sunnudaginn 8.maí.
Kennslan fer fram í Hattarvallahöllin.
Kennslan fer fram í einkatímum alla dagana.
Mælst er til þess að nemendur fylgist með kennslu hjá samnemendum sínum.
Tveir valmöguleikar eru í boði. 2x25mín einkatími - laugardag og sunnudag. 1x50mín einkatími – laugardag og sunnudag.
Einungis eru í boði 8 pláss.
Verð kr.32.000. kr pr þátttakenda.
Skráning fer fram í gegnum Sportfeng.
Fræðslunefnd Spretts