Skráningafrestur á para námskeið hjá Þórarni Ragnarssyni rennur út núna
12. mars. Þórarinn þarf vart að kynna fyrir hestamönnum enda ná miklum árangri á bæði keppnisbrautinni og kynbótabrautinni, en hann var m.a. sigurvegari Landsmóts 2012 í A-flokki og gæðingaknapi ársins sama ár.
Kennt verður í paratímum, þ.e. 2 saman í hóp í ca. klukkustund. Kennt verður á miðvikudögum í
Samskipahöllinni, hólfi tvö og er kennt á milli 17:00 og 21:00. Það ber að hafa í huga að páskar eru á þessu tímabili og má því búast við því að tilfæringar verði á þeim tímum en heildarfjöldi tíma mun verða 6 skipti
Verð á einstakling er 35.500 kr.
Skráning hafin á
www.sportfengur.comNámskeiðið hefst 15. mars nk. og kennt verður í 6 skipti.
Líkt og ávallt áskilur nefndin sér að fella niður námskeið náist ekki skráning.