Þá er komið að næsta námskeiði sem fræðslunefnd Spretts stendur fyrir þetta árið. Nú bjóðum við uppá helgarnámskeið hjá Jóhanni Kr Ragnarssyni helgina
17. – 19. febrúar.
Jóhann þarf vart að kynna fyrir hestafólki, hann hefur staðið sig frábærlega bæði á keppnisvellinum og við sýningar á kynbótahrossum. Þá var Jóhann ennfremur valinn Íþróttamaður Spretts 2015.
Kennsla fer þannig fram að föstudaginn 17. febrúar verða kenndir hálftíma einkatímar, til að kynnast knapa og hest. Laugardag og sunnudag verður svo kennt í 40 minútna einkatímum.
Verð er 27.000kr fyrir hvern þátttakanda.
Skráning mun fara fram í gegnum Sportfeng, en vegna gagnagrunnsuppfærslu hjá síðunni mun skráning ekki hefjast fyrr en þriðjudaginn 7. febrúar. Skráningarfrestur er til og með miðvikudeginum 15. febrúar.
Nefndin áskilur sér rétt til að fella niður námskeiðið ef þáttaka er ekki næg.
Kveðja, fræðslunefnd Spretts.