Nú fer hver að vera síðastur á skrá sig á eftirfarandi námskeið sem hefjast þann 23. janúar nk.
KnapamerkinOpið er fyrir skráningu á knapamerkin, þ.e. 1,2,3 og 4 en skráningarfrestur er til 20. janúar á miðnætti. Kennsla fer fram í Hattarvallahöllinni og kennt verður á mánudögum og miðvikudögum. Knapamerki 1 og 2 verður undir handleiðslu Matthías Kjartanssonar reiðkennara, knapamerki 1 verður kennt milli 17:00 – 18:00 en knapamerki 2 milli 18:00 – 19:00.
Knapamerki 3 og 4 verða einnig kennd í Hattarvallahöllinni en Þórdís Anna Gylfadóttir er þar kennari.
Knapamerki 3 verður kennt á mánudögum kl. 20:00 – 21:00 og miðvikudögum kl. 19:00 – 20:00.
Knapamerki 4 verður kennt á mánudögum kl. 21:00 – 22:00 og á miðvikudögum kl. 20:00 – 21:00.
Verð:
Knapamerki 1: Kenndir eru 12 tímar með prófi, verð fyrir unglinga 14-18 ára er 21.000 kr. en fyrir fullorðna 30.000 kr.
Knapamerki 2: Kenndir eru 15 tímar með prófi, verð fyrir unglinga 14-18 ára er 26.500 kr. en fyrir fullorðna 37.500 kr.
Knapamerki 3: Kenndir eru 20 tímar með prófi, verð fyrir unglinga 14-18 ára er 35.000 kr. en fyrir fullorðna 52.500 kr.
Knapamerki 4: Kenndir eru 25 tímar með prófi, verð fyrir unglinga 14-18 ára er 43.750 kr. en fyrir fullorðna 59.500 kr.
Skráning fer fram á
www.sportfengur.comLágmarksfjöldi er 4 í hvern hóp en látið verður vita 21. janúar hvort og þá hvaða knapamerki ná ekki að uppfylla lágmarskfjölda og verður þá námskeiðið fellt niður.
Hestamennska
Hestamennska II, IV og VI að hefst nk. mánudag, 23. janúar! Nú er skráning í fullum gangi á námskeiðin í Hestamennsku. Hestamennska II, IV og VI verður í boði fyrir börn og unglinga hjá hestamannafélaginu Spretti í vetur og er lágmarksaldur 8 ára. Kennt verður 1x í viku í Samskipahöllinni. Kennarar eru sem fyrr Sigrún Sigurðardóttir og Þórdís Anna Gylfadóttir.
Kennsla er í Samskipahöllinni, hólfi 3 (vestast). Kennsla hefst eins og áður segir 23. janúar og er kennt einu sinni í viku hverjum hópi í 10 vikur.
Hestamennska II er hugsuð fyrir byrjendur og þau sem eru að stíga sín fyrstu skref í hestamennsku.
Nemendur þurfa þó að hafa eitthvað farið á hestbak og riðið út. Hestamennska II er kennd á miðvikudögum frá klukkan 17:00 – 18:00
Hestamennska IV er hugsuð fyrir þau sem hafa áður farið á námskeið og eru orðin nokkuð vön.
Hestamennska IV er kennd á mánudögum frá kl. 18:00 – 19:00
Hestamennska VI er hugsuð fyrir þau sem hafa lokið öðrum Hestamennsku námskeiðum og eru mjög vön. Hestmanennska 6 er kennd frá kl. 19:00-20:00 á mánudögum
Verð á námskeið er: 29.500 kr. á einstakling
Skráningarfrestur er til miðnættis 20. janúar
Eins og vani er, er sá fyrirvari um að lágmarksfjöldi náist til að námskeið verði haldið!