Námskeiðahald
Helgarnámskeið með Antoni Páli Níelss. 28.jan og 29.jan 2017
Laugardaginn 28.janúar og sunnudaginn 29.janúar 2017 mun Sprettur halda námskeið með reiðkennaranum Antoni Páli Níelssyni.Anton Páll Níelsson er menntaður reiðkennari B frá Háskólanum á Hólum. Hann hefur kennt við Hólaskóla í fjölda mörg ár auk þess að sinna reiðkennslu víða um heim og rækta hross frá Syðra-Holti í Svarfaðardal.Anton Páll hefur verið einn af þjálfurum íslenska landsliðsins í hestaíþróttum sem og nokkrum erlendum landsliðum, t.d. því sænska og austurríska. Anton Páll er þekktur fyrir einfalda, hreinskilna, hestvæna og mjög árangursríka nálgun í reiðkennslu sinni. Hann er án efa einn af allra bestu reiðkennurum landsins.Kennslan fer fram í Hattarvallahöllin. Kennslan fer fram í einkatímum báða dagana. Mælst er til þess að nemendur fylgist með kennslu hjá samnemendum sínum.Tveir valmöguleikar á kennslu eru í boði:2x25mín einkatími - laugardag og sunnudageða 1x50mín einkatími – laugardag og sunnudag.Einungis eru í boði 8 pláss.Verð kr.32.000 kr pr þátttakenda.Skráning fer fram í gegnum Sportfeng.Fræðslunefnd Spretts