Hestamennska II, IV og VI að hefjast! Einnig er skráning í fullum gangi á önnur námskeið! Nú er hafin skráning á námskeiðin í Hestamennsku. Hestamennska II, IV og VI verður í boði fyrir börn og unglinga hjá hestamannafélaginu Spretti í vetur og er lágmarksaldur 8 ára. Námskeiðin hefjast 23.jan. Kennt verður 1x í viku í Samskipahöllinni. Kennarar eru sem fyrr Sigrún Sigurðardóttir og Þórdís Anna Gylfadóttir. Kennsla er í Samskipahöllinni, hólfi 3 (vestast). Kennsla hefst eins og áður segir 23. janúar og er kennt einu sinni í viku hverjum hópi í 10 vikur.
Hestamennska II er hugsuð fyrir byrjendur og þau sem eru að stíga sín fyrstu skref í hestamennsku.
Nemendur þurfa þó að hafa eitthvað farið á hestbak og riðið út. Hestamennska IV er kennd á miðvikudögum frá klukkan 17:00 – 18:00
Hestamennska IV er hugsuð fyrir þau sem hafa áður farið á námskeið og eru orðin nokkuð vön.
Hestamennska IV er kennd á mánudögum frá kl. 18:00 – 19:00
Hestamennska VI er hugsuð fyrir þau sem hafa lokið öðrum Hestamennsku námskeiðum og eru mjög vön. Hestmanennska 6 er kennd frá kl. 19:00-20:00 á mánudögum
Verð á námskeið er: 29.500 kr. á einstakling
Skráning er nú hafin og er skráningarfrestur til miðnættist 20. janúar
Eins og vani er, er sá fyrirvari um að lágmarksfjöldi náist til að námskeið verði haldið!
Minnum á skráningu sem enn er í gangi!Enn er skráning í gangi á námskeið hjá Súsönnu Sand sem hefst 9. janúar, Robba Pet sem hefst 10. janúar og Daníel Jónssyni sem hefst þann 10. janúar! Skráning fer fram sem áður á www.sportfengur.com og fer nú hver að vera síðastur að skrá sig!