Nú styttist í hið árlega Metamót Spretts sem er eitt allra skemmtilegasta mót ársins. Mótið fer fram 7.-9.september á Samskipavellinum. Að venju verður keppt í A- og B-flokki á beinni braut (opnum flokki og áhugamannaflokki), þar sem ekki er sýnt fet og stökk. Að þessu sinni verður boðið upp á tvo flokka í tölti T3, 1. og 2.flokki. Úrslit töltkeppninnar fara fram á kvöldvöku í Samskipahöllinni. Skeiðkappreiðarnar verða að sjálfsögðu á sínum stað, en keppt er í 150m, 250m og 100m fljúgandi ljósaskeiði. Ekki láta þig vanta á lokamót tímabilsins.
Aldurstakmark í keppni er á Metamótinu og miðast þátttökuréttur við Ungmennaflokk.