Ferðanefnd Spretts boðar til hópreiðar föstudaginn 7. Júní. Lagt verður af stað frá félagsheimili Spretts (Andvara) kl. 19:00
Riðið skal sem leið liggur upp með Guðmundarlundi og þaðan eftir frábærum reiðstígum um Heimörkina. Áð verður í ýmsum rjóðrum á leiðinn, í einu slíku stoppi verður boðið upp á létt snakk ásamt einhverjum vökvum, eins og vanalega gegn vægu gjaldi.
Áætlaður reiðtími er ca. 2 klst.
Ætlast er til riðið sé einhesta.
Sjáumst hress og kát.
Ferðanefndin